<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://draft.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d11318911\x26blogName\x3d\x27tis+the+ballad+of+Bob\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dSILVER\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://balladofbob.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3dis_IS\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://balladofbob.blogspot.com/\x26vt\x3d-2569463983589778356', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>





laugardagur, nóvember 27, 2010

Spenar!

Einu sinni þegar ég var í sjö ára bekk varð ég fyrir þvílíku órættlæti að enn þann dag í dag er ég að hugsa um það með skömm, biturð og grenju (hah ég ætlaði að skrifa 'gremju' en 'grenju' lýsir þessu mun betur!).

Kennarinn var að fræða okkur um spendýr og bað okkur að nefna dæmi um slíkar skepnur. Krakkarnir góluðu hestur og belja og allt það. Ég rétti upp hönd, mjög stoltur af sjálfum mer og tilkynnti það sigurviss að dæmi um spendýr sé: „maður“.

Hlátrasköll!

Krakkarnir hlógu að mér og frussuðu Svala út um nefið. „MENN eru ekki með spena!!“ Og meira að segja kennarinn tók þátt í því! Þú veist, ég leit yfir hópinn af krökkunum sem voru að hlæja að mér og svo þegar ég leit til kennarans að stöðva þessa geðveiki þá var HÚN LÍKA HLÆJANDI! TUSSAN!

Hún útskýrði góðlátlega fyrir mér fávitanum að 'maður' sé ekki spendýr -- 'KONA' er spendýr! Og krakkarnir alveg já einmitt KONA er spendýr ekki MAÐUR! Haha Bjössi litli fífl veit ekki að konur eru bara með spena og eru því spendýr og karlmenn hljóta þá bara að vera skordýr eða eitthvað.

Ég man hvað mér fannst ég hafi verið svikinn af kennaranum fyrir að standa með fávitahjörðinni. Sko, ég og þú vitum sannleikann og þú stendur með ÞEIM! Ertu að reyna að ganga í augun á þeim eða??

Ég fullorðnaðist smávegis þann daginn. Ég vona að allir þessir krakkar séu spilafíklar eða eitthvað í dag.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Tussa!!! svona var þetta. Ég man að kennarinn minn tók smá þátt í eineltinu gegn einu feitu stelpunni í bekknum (í denn var jú auðvita bara einn feitur í hverjum bekk.
En fokk hvað hún var/er heimsk, það er bara engu lagi líkt.
Sússa Sviss

12:13 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Fyrir utan það að konur eru líka menn!

5:07 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home